Ágætu Hvítabands félagar
Næsti fundur félagsins verður haldinn að Hallveigastöðum miðvikudaginn 7. nóvember kl.19:30.
Í upphafi fundarins flytur Kristrún Ólafsdóttir hugvekju. Því næst taka við hefðbundin fundarstörf og verður m.a. sagt frá haustfundi BKR og fluttar fréttir frá Noregi.
Félagskonurnar Guðrún Ása Björnsdóttir, Margrét Albertsdóttir og Ragnhildur Einarsdóttir sjá um kaffiveitingar.
Eftir kaffihlé fáum við nokkra góða gesti til okkar frá átröskunarteymi LSH sem er starfrækt í Hvítabandshúsinu við Skólavörðustíg. Munu þau segja okkur frá ráðstefnunni í Danmörku í september sl
Eitt helsta verkefni vetrarins er öflun nýrra félaga og biðjum við ykkur því endilega að taka með ykkur gesti til að kynnast félaginu, eiga góða stund saman og hlýða á fróðlegt erindi.
Hlökkum til að hitta ykkur.
Stjórnin.