Aðventan er gengin í garð og þá hittumst við og njótum hátíðardagskrár í félaginu okkar. Jólafundurinn verður haldinn á Hallveigarstöðum miðvikudaginn 7. desember 2016 kl. 19:30.
Dagskrá:
- Formaður setur fund.
- Hugvekju flytur Kristrún Ólafsdóttir.
- Ritari les fundargerðir.
- Margrét Albertsdóttir les jólasögu.
- Að venju verða veittir styrkir og gestir koma að veita þeim viðtöku.
- Tilkynnt hver hlýtur „afmælisstyrkinn“. Stórafmælisbörn á árinu 2016 eru sérstaklega hvattar til að mæta og vera viðstaddar.
- Afhentur verður árlegur styrkur til Dyngjunnar.
- Að lokum syngjum við saman.
Á jólafundinum verður að venju safnað í sjóð til jólagjafakaupa fyrir börn kvenna sem dvelja á Dyngjunni um jólin. Við vonumst eftir góðri þátttöku.
Þorbjörg Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Steinunn Stefánsdóttir og Ragnhildur Jónasdóttir sjá um gómsætar veitingar á hátíðarborðið.
Fjölmennum á jólafundinn og tökum með okkur gesti.
Stjórnin