Header

Ályktun aðalfundar Hvítabandsins 04.03.26

March 5th, 2026 | Posted by admin in Uncategorized

Aðalfundur Hvítabandsins haldinn 4. mars 2026 harmar þau óvönduðu vinnubrögð sem fram koma frá formanni Bandalags kvenna í Reykjavík (BKR) að víkja Hvítabandinu sem var eitt af stofnfélögum BKR, úr Bandalagi kvenna í Reykjavík.  Það er engin heimild fyrir þessum gjörningi í lögum BKR.

Hvítabandið hefur starfað í rúm 130 ár, hefur einkunnarorðin – Fyrir Guð, heimilið og þjóðina og vinnur af heilindum samkvæmt þeim orðum.  Hvítabandið hefur ekki á neinn hátt unnið gegn BKR og þar sem félagafrelsi er í landinu er þetta með slíkum eindæmum óvönduð vinnubrögð af hálfu stjórnar BKR.

Aðalfundurinn samþykkti að aðhafast ekkert að svo stöddu en skorar á formenn aðildarfélaga BKR að fordæma þessi vinnubrögð.

Formaður Hvítabandsins, Sigríður Unnur Sigurðardóttir

You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 Responses are currently closed, but you can trackback.