Kæru Hvítabandsfélagar,
Ég vona að þið séuð allar hressar og haldið ykkur eins mikið heima og
mögulegt er. Opið er í verslun okkar í Furugerði, Ragnhildur
Jónasardóttir sér ein um innkaup og afgreiðslu.
Þökkum við óeigingjart starf hennar fyrir félagið á tíma
kórónuveirunnar.
Eins og við öll vitum er samkomubann vegna kórónuveirunnar, þar með
falla niður afmælisfundur okkar sem átti að vera í apríl og eins
verður ekkert af vorferð í maí.
Heilsist ykkur sem best. Fyrir Guð heimilið og þjóðina
Kær kveðja fyrir hönd stjórnar,
Þorbjörg Guðmundsdóttir
formaður