Lög Hvítabandsins
1 gr.
Félagið heitir Hvítabandið.
Félagið var stofnað 17. Apríl 1895.
Kjörorð Hvítabandsins: Fyrir Guð – Heimilið – Þjóðina
2 gr.
Félagið er líknarfélag. Stefnuskrá þess eru líknarmál og skulu þau jafnan vera aðalmál félagsins. Einnig vinni það að bindindis -, mannúðar- og menningarmálum.
3 gr.
Félagi getur hver sá orðið sem er fullra 18 ára, vill starfa eftir stefnuskrá félagsins og hlýta lögum þess. Sérhver nýr félagi riti nafn sitt í rithandarsafn félagsins við inngöngu.
4 gr.
Úrsagnir úr félaginu skulu vera skriflegar eða símleiðis til stjórnar.
5 gr.
Stjórnin skal skipuð 3 félögum: formanni, ritara og gjaldkera. Kjósa skal formann sérstaklega og eru allir stjórnarmenn kosnir til þriggja ára í senn. Hægt er að kjósa stjórnarmenn í tvö tímabil. Aðalfundur kýs tvo skoðunarmenn
6 gr.
Formaður kallar saman félags-og stjórnarfundi, hann stýrir eða skipar fundarstjóra í sinn stað ef þörf krefur. Í forföllum formanns leysa aðrar stjórnarkonur formann af.
Ritari heldur gjörðabók félagsins á stjórnar-og félagsfundum og færir þær í greinilegt ágrip af því sem þar gerist. Einnig annast hann bréfaskriftir ásamt formanni.
Gjaldkeri varðveitir sjóði félagsins og sér um að ávaxta þá á sem hagkvæmastan hátt. Hann innheimtir árgjöld og greiðir reikninga eftir að formaður hefur áritað þá.
Gjaldkeri leggur fram ársreikninga fyrir aðalfund ár hvert.
7 gr.
Fundir skulu haldnir einu sinni í mánuði á tímabilinu 1. október til 31. maí ekki færri en 5, eða oftar ef þörf krefur.
8 gr.
Aðalfundur skal haldinn fyrir 1. apríl ár hvert. Þessi eru viðfangsefni aðalfundar.
- Skýrsla stjórnar
- Gjaldkeri leggur fram skoðaða reikninga til
samþykktar - Stjórnarkjör og kosning tveggja skoðunarmanna
- Nefndarkosning
- Lagabreytingar
- Önnur mál
Boða skal til aðalfundar með minnst 10 daga
fyrirvara.
9. gr
Árgjald er ákveðið á aðalfundi.
10 gr.
Lögum þessum verður eingöngu breytt á aðalfundi. Skal breytingartillögum skilað til formanns félagsins eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund.
Breytingartillaga er samþykkt með minnst 2/3 greiddra atkvæða.
Samþykkt á aðalfundi 05.03.2025
