Í dag 28. júní 2026 tók Hvítabandið þátt í Ólafíumessu að Mosfelli í Mosfellsbæ. Nokkrir félagar úr Hvítabandinu mættu og las Vala Georgsdóttir ritningalestur og formaðurinn Sigríður U Sigurðardóttir flutti nokkur orð um Ólafíu Jóhannesdóttur og tengsl hennar við félagið. Hér á eftir er samantekt á erindinu og nokkrar myndir frá deginum:
Sem formaður Hvítabandsins er það mér bæði ljúft og skylt að heiðra minningu Ólafíu Jóhannesdóttur og við hæfi að gera það hér að Mosfelli þar sem reistur er minningarsteinn um þessa merku konu. Ólafía er okkur Hvítabandsfélögum afar kær og erum við stoltar af okkar konu og höfum ávalt haldið minningu hennar á lofti enda var hún sú sem lagði til að stofnað yrði bindindisfélag kvenna eins og það hét í fyrstu en var svo síðar breytt í Hvítabandið. Hvítabandið var stofnað 17. apríl 1895 eða fyrir rúmlega 130 árum.
Á þessum tíma vann Hvítabandið og þá sérstaklega Ólöf mikið með Góðtemplarareglunni. Í málflutningi sínum tengdi Ólafía saman baráttuna fyrir kosningarétti kvenna og bindindismálin og árið 1896 hélt Indriði Einarsson því fram að eitt megintakmark Hvítabandsins ætti að vera almennur kosningaréttur kvenna, þá fyrst væri bindindismálinu borgið.
Hvítabandið hefur alla tíð síðan stutt vel við bindinsmál sem voru Ólafíu einkar hugleikin þó mannúðar- og líknarmál skipi nú æ meiri sess í starfsemi félagsins.
Í anda Ólafíar eru einkunnarorð félagsins „Fyrir Guð, heimilið og þjóðina“ sem lýsir starfsemi félagsins einna best og er rauði þráðurinn í öllu starfi félagsins.




