Um Hvítabandið
Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði yfir veturinn, fyrsta miðvikudag, á Hallveigarstöðum við Túngötu. Er gjarnan reynt að bjóða upp á fræðslu- og skemmtiefni. Þá er einnig farið í ferðalög á sumrin og er þátttaka mjög góð.
Nýir félagar eru ávallt velkomnir.
Aðalfjáröflun félagsins er verslun sem hefur verið rekin frá árinu 1986 í Furugerði 1 þar sem eru þjónustuíbúðir aldraðra. Versluninni hefur nú verið lokað. Áður fyrr byggðist fjáröflun eingöngu á árlegum basar og merkjasölu.
Stjórn Hvítabandsins kosin á aðalfundi 2022 er þannig skipuð:
Formaður: Þorbjörg Guðmundsdóttir
Ritari: Margrét Guðmundsdóttir
Gjaldkeri: Oddfríður S Helgadóttir
Meðstjórnandi: Ragnhildur Jónasdóttir og Auður María Aðalsteinsdóttir
Leave a Reply
You must be logged in to post a comment.