VORFERÐ HVÍTABANDSINS
Nú líður senn að vorferðinni okkar miðvikudaginn 14. maí 2014 en ferðin er jafnframt maífundur félagsins.  Farið verður að þessu sinni um Suðurstrandaveg með viðkomu í Krýsuvík, Strandarkirkju og  Húsinu á Eyrarbakka.
Ljúffengur kvöldverður verður snæddur i Tryggvaskála á Selfossi. 
Ferðin kostar 6.000.- krónur og er innifalið: Rútan, kvöldverður, hressing og aðgangseyrir í Húsið. Greitt er við rútuna.
Leiðsögumaður í ferðinni verður Helgi Ágústsson
Lagt verður af stað sundvíslega kl. 16.00 frá planinu í Mjóddinni fyrir ofan kirkjuna og er áætluð heimkoma um kl. 21.00.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir föstudaginn 9. maí.
Símar:   869-5010 (Heba)
	 824-6129 (Dagmar)
Netfang: hvitabandid@hvitabandid.is
Fjölmennum í þessa góðu ferð og tökum með okkur gesti.
					Með kveðju.
					Ferðanefndin

    