Afmælis- og gestafundur Hvítabandsins verður haldinn að Hallveigastöðum miðvikudaginn 3. apríl 2013 kl.19:30.
Kvenfélag Árbæjarsóknar munu heimsækja okkur og einnig nýkjörinn formaður BKR. Við vonum að sem flestar geti mætt og biðjum við ykkur félaganna að vera duglegar að bjóða gestum með ykkur til að kynnast félaginu og eiga góða stund saman. Við hefjum fundinn á hefðbundnum störfum en eftir kaffihlé þar sem félagskonur munu reiða fram dýrindis veitingar verður dagskráin með léttu og skemmtilegu ívafi.
Það verður tískusýning með öllu því nýjasta í vortískunni frá Versluninni Möst í Skeifunni. Gestir koma og taka lagið fyrir okkur.
Minnum á félagsgjaldið kr. 2.000.- hægt er að leggja það inn á reikning félagsins:
kt. 650169-6119, banki 0137-15-370303
Hlökkum til að sjá ykkur sem flesta og munið að taka með ykkur gesti.